Þegar fólk og ferlar mætast verður breytingin raunveruleg
Heildræn býður upp á hagnýtar lausnir sem styðja við skýrari vinnuferla, betra flæði og sterkari framkvæmd. Lausnirnar byggja á heildrænni sýn þar sem ferlar, ábyrgð og upplýsingaflæði eru skoðuð í samhengi og niðurstöður eru settar fram á skýran hátt sem nýtist í ákvörðunum og umbótum.
Greina og gera sýnilegt
Kortlagning vinnuflæðis, ábyrgðar og upplýsingaflæðis til að skýra stöðuna og finna hnökra og flöskuhálsa.
Einfalda og bæta
Forgangsröðun umbóta og mótun aðgerða sem draga úr flækju og styrkja framkvæmd.
Styðja við framkvæmd
Vinnustofur, fræðsla og eftirfylgni sem hjálpar til við að halda umbótum lifandi í daglegu starfi.
Ferlagreining og hnökrakortlagning
Þessi lausn er grunnur að skýrari heildarmynd. Unnið er með lykilferla og samskiptalínur, hnökrar og tvíverknaður eru gerður sýnilegur og dregin fram þau atriði sem hafa mest áhrif á flæði og framkvæmd. Niðurstaðan er skýr framsetning á stöðunni og hagnýtar tillögur að umbótum sem hægt er að forgangsraða.
Fyrir fyrirtæki sem vilja sjá hvar tími, orka og auðlindir tapast í daglegum ferlum.
- Greining á lykilferlum og samskiptalínum.
- Kortlagning á hnökrum, tvíverknaði og flöskuhálsum.
- Tillögur að einföldum umbótum sem skila skjótum ávinningi.
Hentar sem fyrsta skref fyrir fyrirtæki sem vilja fá skýra mynd af stöðunni.
Heildræn ferlaumbótaverkefni
Heildræn ferlaumbótaverkefni sameina greiningu, umbætur og eftirfylgni í einu samfelldu ferli. Fyrst er dregin upp skýr mynd af ferlum og tengingum milli eininga, síðan eru umbætur mótaðar og forgangsraðað, og loks er fylgt eftir með mælikvörðum og einföldum stjórnunarverkfærum eftir þörfum. Áherslan er á framkvæmd sem heldur, ekki skjal sem safnar ryki.
Fyrir fyrirtæki sem vilja fara alla leið í að hagræða og nýta betur mannauð og kerfi
- Greining, kortlagning og innleiðing umbóta í einu samhengi.
- Sameining gagna, tækni og vinnubrögða í skýra heild.
- Regluleg mæling á árangri og eftirfylgni.
Hentar stærri verkefnum þar sem raunveruleg umbreyting er markmiðið.
Breytingastjórnun í framkvæmd.
Þegar breytingar eru innleiddar skiptir mestu að skilja hvernig vinnan fer í raun fram og hvað mótar viðhorf og venjur í daglegu starfi. Breytingastjórnun hjá Heildræn styður við að umbreyta innsýn í skýrar aðgerðir, samræma skilning og tryggja að breytingar tengist raunverulegri framkvæmd.
Fyrir fyrirtæki sem eru að innleiða ný kerfi, ferla eða skipulagsbreytingar.
- Aðstoð við að skipuleggja innleiðingu með áherslu á starfsfólkið.
- Samskipta- og þátttökuaðferðir sem draga úr mótstöðu.
- Eftirfylgni og stuðningur við stjórnendur og lykilfólk.
Hentar þegar breytingar eru í gangi eða framundan.
Vinnustofur og fræðsla
Vinnustofur og fræðsla eru hagnýtar og byggðar á raunverulegum dæmum úr starfsemi. Þar er unnið með ferla, samskipti og hindranir í sameiginlegri greiningu, þannig að skilningur og lausnir verða sameign þátttakenda. Það styður við ábyrgð, festu og áframhaldandi umbætur.
Fyrir teymin sem vilja efla skilning, samvinnu og sameiginlegan árangur.
- Sérsniðnar vinnustofur um ferla, gæði og vinnumenningu.
- Aðferðir sem virkja starfsmenn og tengja þá betur við markmið fyrirtækisins.
- Fræðsla um hvernig litlir hnökrar geta haft stór áhrif.
Hentar bæði sem sjálfstæður viðburður eða sem hluti af stærra umbótaverkefni.
Árangursmælaborð
Árangursmælaborð eru hagnýt og markviss stjórntæki sem tengja lykilmælikvarða við raunverulegt vinnuflæði og ábyrgð. Þau skapa skýra yfirsýn sem styður við samtal, upplýsta ákvarðanatöku og markvissar umbætur í framkvæmd.
Lausnin hentar fyrirtækjum og stofnunum sem vilja að gögn og mælikvarðar styðji við sameiginlegan skilning, samstillingu og daglegt starf.
Lausnin felur meðal annars í sér:
-
Hönnun einfaldra og myndrænna mælaborða sem tengja gögn við raunverulega vinnu
-
Skýra tengingu milli mælikvarða, ferla og ábyrgðar
-
Ramma fyrir reglulegt samtal um stöðu, flæði og umbætur
-
Greiningu á mynstrum og frávikum sem benda á tækifæri til úrbóta
Henta sérstaklega þegar gögn eru til staðar en nýtast takmarkað í daglegu starfi, eða þegar þörf er á sameiginlegri og skýrri mynd áður en farið er í umbætur eða breytingar.
Hvar er best að byrja
Lausnir Heildræn eru oft settar saman í skýra röð, eftir þörfum og umfangi:
-
Greining og kortlagning til að skýra stöðuna
-
Forgangsröðun umbóta og mótun aðgerða
-
Stuðningur við framkvæmd og eftirfylgni
Þessi uppbygging tryggir að umbætur byggist á skýrri heildarmynd og nýtist í daglegu starfi.
Skýrari mynd - Skýrari næstu skref.
Stutt samtal dugar oft til að afmarka hvar mestur ávinningur liggur og hvaða nálgun hentar best.