Nýtt upphaf er oft tengt skýrri sýn, markmiðum og áætlunum. Við viljum vita hvert við erum að fara og hvernig við ætlum að komast þangað. Í breytingum, hvort sem þær eru persónulegar eða eiga sér stað innan fyrirtækja, er hins vegar eitt sem gleymist oft: að gefa sér leyfi til að vita ekki allt strax.
Að byrja upp á nýtt án þess að hafa öll svörin er ekki veikleiki. Það er oft nauðsynlegt skref til að skapa raunverulegan skilning.
Gestsaugað sem upphafspunktur
Þegar við stígum inn í nýtt upphaf erum við gjarnan í stöðu gests. Við höfum ekki vanist flæðinu, óskráðum reglum eða þeim leiðum sem fólk hefur lært að fara til að láta hlutina ganga upp. Einmitt þar liggur styrkurinn.
Gestsaugað sér það sem aðrir hafa hætt að taka eftir:
- hnökra sem eru orðnir sjálfsagðir,
- óskýr samskipti sem enginn spyr lengur um,
- flæði sem virkar illa en er samt orðið normið.
Þegar við leyfum okkur að vera gestir skapast rými til að sjá vinnuna eins og hún raunverulega er, ekki bara eins og hún er lýst.
Óvissa sem nauðsynlegur hluti breytinga
Í mörgum skipulagsheildum er rík tilhneiging til að vilja draga úr óvissu sem fyrst. Taka ákvarðanir hratt, setja lausnir í gang og sýna öryggi. En í raunverulegum breytingum er óvissa oft nauðsynlegur áfangi.
Óvissan gefur okkur færi á að:
- spyrja einfaldra spurninga,
- hlusta áður en við leggjum til lausnir,
- skilja samhengi, flæði og raunverulegt álag.
Í fræðum er þetta kallað skilningsmótun (sensemaking), ferlið þar sem fólk reynir að átta sig á því hvað er að gerast og hvað það þýðir í raun.
Að byrja á því að sjá, ekki laga
Algeng viðbrögð við nýju upphafi eða breytingum eru að grípa strax til aðgerða: ný ferli, ný kerfi eða nýjar reglur. Oft er það gert þrátt fyrir góðan ásetning. En án sameiginlegs skilnings er hætt við að verið sé að leysa röng vandamál.
Gestsaugað hjálpar til við að hægja á:
- sjá flæðið í heild,
- gera ósýnilega vinnu sýnilega,
- og skapa sameiginlegan skilning áður en gripið er til lausna.
Þegar fólk sér hvernig hlutirnir tengjast verður auðveldara að taka ákvarðanir sem standast tímans tönn.
Niðurstaða: Nýtt upphaf án flýtileiða
Að byrja upp á nýtt krefst ekki þess að við höfum allar lausnir tilbúnar. Það krefst þess að við:
- sjáum skýrar,
- hlustum betur,
- og gefum skilningi tíma til að mótast.
Gestsaugað er ekki aðeins gagnlegt í upphafi. Það er dýrmætt verkfæri í allri umbótavinnu þar sem markmiðið er að skapa sjálfbærar breytingar sem byggja á raunverulegri innsýn, ekki aðeins áformum.
Raunveruleg breyting byrjar oft ekki með lausn, heldur með því að leyfa sér að vita ekki svörin strax.
Greinin byggir m.a. á fræðum um skilningsmótun, skilningsmiðlun og ákvarðanatöku í óvissu. Sjá nánar:
¹ Weick (1995)
² Gioia & Chittipeddi (1991)
³ Snowden & Boone (2007)
Add comment
Comments